Beint á leiðarkerfi vefsins

10.2.2012

Könnun meðal fagfólks í iðnaði

Nú nýverið lét IÐAN fræðslusetur kanna viðhorf fagfólks í iðnaði til starfsins, vinnustaða og möguleika til starfsþróunar. Niðurstöðurnar eru áhugverðar fyrir alla þá sem hafa áhuga á málefnum iðn- og starfsnáms. Þær varpa áhugaverðu ljósi á ímynd iðnaðar, starfsánægju og sjálfsmynd fagfólks í iðnaði. 

Kynningarnar fara fram að Skúlatúni 2, á 6.hæð og verða sem hér segir:

Kynning fyrir starfsfólk í prentiðnaði - 14. febrúar kl.8.30-10.00

Kynning fyrir starfsfólk í byggingariðnaði - 15. febrúar kl. 8.30-10.00

Kynning fyrir starfsfólk í  málm- og véltækniiðnaði 17. febrúar kl. 8.30-10.00

Kynning fyrir starfsfólk í hársnyrtiiðn 21. febrúar kl. 8.30-10.00

Kynning fyrir starfsfólk í  matvæla- og veitingagreinum 22. febrúar kl. 8.30-10.00

Kynning fyrir starfsfólk í  bílgreinum  23. febrúar kl. 8.30-10.00 

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. 

6.1.2012

Styrkir til vinnustaðanáms

Styrkir til vinnustaðanámsVið viljum vekja athygli á því að mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði ráðuneytisinshttp://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Forsidugreinar/nr/6507

28.11.2011

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf verða haldin í desember, janúar og febrúar.

1.11.2011

Stórt skref til eflingar starfsnámi

VinnustaðanámssjóðiurKatrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra úthlutaði í gær styrkjum til fyrirtækja og stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Þetta er merkur áfangi í eflingu starfsnáms í landinu en samtals var úthlutað 57 milljónum til 65 fyrirtækja og njóta um 170 nemar góðs af þessari fyrstu úthlutun. Ingólfur Haraldsson hótelstjóri á Hilton Nordica tók á móti styrknum fyrir hönd síns fyrirtækis.

7.10.2011

World Skills London

World Skills pipararWorld Skills keppninni lauk í dag. Íslensku keppendunum hefur gengið ágætlega í sínum greinum. Keppt er í samtals 46 greinum en fjöldi þátttakenda í hverri grein er mismunandi. Hér er hægt að nálgast myndir  frá keppninni og keppendum. Hér er kynning á íslensku keppendunum. Myndband með Friðrik Óskarssyni keppanda í pípulögnum og Jóhönnu Stefnisdóttur keppanda í hársnyrtigreinum.

5.10.2011

World Skills London

Ísland á WSLondonWorld Skills leikarnir voru settir í gær og var opnunarhátíðin hin glæsilegasta. Samtals taka um 950 keppendur frá 58 þjóðlöndum þátt í leikunum. Keppnin hefst í dag og stendur yfir næstu fjóra daga. Frá Íslandi keppa þau Jóhanna Stefnisdóttir í hársnyrtiiðn, Friðrik Óskarsson í pípulögn og Arnar Helgi Ágústsson í rafvirkjun.

Sjá nánar myndir frá opnunarhátíðinni.

18.9.2011

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema 2011

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema fór fram dagana 17. og 18. september í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi. Í úrslitakeppninni kepptu fimm framreiðslunemar og aðrir fimm nemar í matreiðslu. Keppnin var mjög hörð og jöfn en sigurvegarar í keppni framreiðslunema voru þær Elín Bogga Þrastardóttir nemi á VOX, meistari Elínar er Gígja Magnúsdóttir og Eydís Rut Ómarsdóttir á Fiskfélaginu. Meistari Eydísar er Guðmundur Hansson. Í matreiðslu urðu sigurvegarar þeir Kristofer Hamilton Lord og Viktor Már Snorrason nemar á Fiskfélaginu. Meistari þeirra er Vigdís Ylfa Hreinsdóttir. Vinningshafar munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem fer fram í Finnlandi í apríl 2012.  

3.8.2011

ATypi heldur ráðstefnu í Hörpu

Alþjóðasamtök leturgerðarmanna, ATypi heldur ráðstefnu í Hörpunni í Reykjavík 14. - 18. september n.k. Ráðstefnan hefst með 2ja daga vinnustofu og málstofum um leturgerð og hönnun þar sem gestir fræðast um skáletur, bókstafahönnun og leturhönnun. Þá verða vinnustofur um vef-letur, letur fyrir lesbretti, námskeið og fonta. Sérstaklega er minnt á fyrirlestur Gunnlaugs S.E. Briem fimmtudagskvöldið 15. september. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má finna hér.
Prenttæknisvið hefur tryggt sér takmarkaðan fjölda afsláttarmiða á ráðstefnuna fyrir aðildarfélaga sína. Áhugasamir hafi samband við sviðsstjóra prenttæknisviðs á bjorn(hjá)idan.is

Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd